19apríl

Drápa

Eftir 105 daga í mæjónesi, snakki, frönskum kartöflum, djúpsteiktum mat, te-i, ofsöltuðum mat, bökuðum baunum, öðrum baunum, hamborgurum með lauk, pulsum og öðrum gæða hráefni þá er ég loksins orðinn saddur. Eftir 105 daga í landi teknó tónlistar, Timberland- og tattoo-a tísku þá er kominn tími til að kveðja tjallana og halda heim á leið. Flugmiðinn er allavega dagsettur a morgun.

 

Hins vegar hafði ég helvíti gaman af þessu öllu saman búandi með meisturunum í Hazelmere Gardens. Skemmtilegar týpur það verður ekki meira sagt. Þau eru nú þegar búinn að bjóða mér æfilanga gistingu og get ég komið hingað þegar mér listir og þá er ég sértaklega velkominn þegar ég er kominn með börn. Þetta sagði Karen mér allavega í gær, hehe. Sidan baud fraendi teirra mer pening ef ad eg myndi lata ryan fara til islands i stadinn fyrir mig, en eg aftakkadi gott bod.


Reyndar er ekki alveg eins að búa hér og í Daltúninu. Hér var borðað heima stundvíslega klukkan hálf sex og matarfjölbreytnin var enginn. Sömu tíu réttirnir rúlluðu hring eftir hring og fóru þau aldrei út að borða. Var vaktur á hverjum morgni með te bolla af húsfreyjunni. Fyrir mér var heimilið dýragarður og er ég næstum orðinn jafn mikill dýravinur og Steve Irwin heitinn. Tveir hundar, talandi fugl, fiskar bæði inni og úti er ekki slæmt. Hér er mynd af því hversu vel ég og Lola náðum saman.

 j

Fékk nú reyndar ekki að spila jafn mikinn fótbolta og ég ætlaði mér en var í staðinn einstaklega duglegur að fara á fótboltaleiki og kíkti á þá nokkra. Kostaði sitt en ég sé nú ekkert eftir því, nema kannski City leikjunum. Komst að því að Manchester City er leiðinlegasta lið heimsins og Manchester United það skemmtilegasta. Reyndar vissi það áður en ég fór en hef fengið staðfestingu á því núna. Leikirnir sem ég kíkti á;

 

  1. 2-1 Manchester United – Portsmouth  – Rooney Rooney Rooney
  2. 0-0 Bolton – Manchester City – the referee is a wanker the referee is a wanker
  3. 1-1 Bolton – Charlton – sit and shut up - sit and shut up - sit and shut up
  4. 1-1 Manchester United – Reading – there’s only one Brynjar Gunnars
  5. 0-0 Wigan – Fulham – come on Wigan - come on Wigan
  6. 2-0 Manchester United – Charlton – Mourinho are you listening you better keep our trophy glistening we are 6 point ahead you Portuguese cunt walking into Fergie wonderland
  7. 0-1 England – Spánn - come on England - come on England
  8. 3-0 Blackburn – Portsmouth – England football - England England football
  9. 1-0 Manchester United – Lille – u-n-i t-e-d United are the team for me
  10. 0-3 Leigh RMI – Burrows – who are we?  red army! - who are we? red army!
  11. 6-3 Manchester United – Europe XI – he plays on the left he plays on the right there’s only one Ronaldo and he makes you look shiit
  12. 4-1 Manchester United – Blackburn – who the fuck are Man United - who the fuck are Man United
  13. 0-0 Manchester City – Liverpool – fuck off city - fuck off city
  14. 3-3 Wigan – Tottenham – Pascal is a wanker - Pascal is a wanker
  15. 2-0 Manchester United – Sheffield United - going down going down going down
g

j

Hvað varðar vídjóin af siggu og villa þá er ég búinn að senda þeim þau svo að þau geti hafið dreifingu á þeim. Þannig að það er bara að senda þeim póst. Hér er allavega mynd úr myndbandinu góða. Ef þau fara ekki í dreifingu sé ég fram á að vera með þau tvö í rassvasanum næstu árinn.

j

Þar sem ég er að fara heim þá er þetta loka blogg þessara síðu, vúhú. Hvað er geri í sumar má Guð vita, hvað ég geri næsta haust það má hann einnig vita. Allavega hef ég ekki sigmund né guðmund um það sjálfur. Spurning Sigga, hvort þú spyrð ekki Benna fyrir mig að þessu ég held nefnilega að hann sé með númerið hjá honum.


Heim í skyrið og íslenska vatnið......

kv. Þórhallur

19. apríl 2007 klukkan 09:48
Ţórhallur Siggeirsson
3 athugasemdir
12apríl

Bexý Bags

Þessi bloggfærsla verður skírð í höfuð af manneskju mánaðarins Berglindi a.k.a Bexý Bags. Varð fyrir þeim hlunnindum að hitta þessa gyðju með berum augum á Spáni og kemur hún til með að eiga sess í líkama mínum að minnsta kosti út vikuna.


Annars var Spánarferðin fín eins og búast má við þegar maður kíkir til heitu landanna. Hins vegar var Spánn ekki að standa sig þar sem það rigndi nánast allan tímann. Sól í tvo daga af sjö er náttúrulega ekki Spáni sæmandi. Þannig að þið getið ímyndað ykkur hversu miklum tíma var eytt í verslanir þegar maður er í fjölskyldu sem inniheldur þrjár verslunarsjúka einstaklinga. Íbúðin var mjög fín og garðurinn jafnvel betri þannig að það verður eflaust stutt í að maður fari aftur.

u
husid goda
k

Reyndar þurfti ég að spyrja mig með stórum stöfum hvað í andsk... ég var að gera þarna þegar United spilaði einhverjar skemmtilegustu 90 mínútur í sögu meistaradeildarinn akkúrat meðan ég var úti. 7-1 á móti Róma og ættu íslenskir rómverjar (sigga!) að skammast sín fyrir þessa framkomu, hehe.

k

siggi i rigningunni godu


Þó það hafi verið fínt að hitta fjölskylduna þá olli Vilhjálmur mér vonbrigðum þar sem hann er nánast orðin höfði hærri en ég. Skýjakljúfrið sem var valinn “customer of the month” í Grænatúni í mars var hress og skemmtum við okkur konunglega zusammen. Villi a.k.a Pretty-boy sem fékk jafn mikið áhorf og skjávarpinn á barnum þegar United-Roma leikurinn var af breskum eðalmeyjum þarf reyndar að taka sig á í Go-kartinu þar sem hann var hringaður nokkrum sinnum af mér.

f
troskad - greinilega enntha i grunnskola tessi
u

Ætla það sé ekki stefnan á að koma heim í næstu viku. Annars er ekkert að frétta fyrir utan það að ég er búinn að bæta á mig of mörgum kílóum frá því ég kom hingað út. Kominn líka með þessa myndarlegu bumbu þannig að þegar maður kemur á klakann þarf maður líklega að byrja á því að skera af henni, hehe.

k

Hef þetta ekki lengra þar sem mér skilst að of langar færslur séu fráhrindandi og skelli því í staðinn nokkrum steikhúsamyndum úr ferðinni.


u

el familio


k

en saett

;

klassiskt

i
gerast ekki hardari
u
flipp a fostudegi
l
mamma ... say no more

ui

afahopp - konan er allavega ad fyla tad

o

skola pung !!

yu

ekkert sma steikt fjolskylda ....


 

Annars er ég með nokkur myndbönd af tveimur sýruhausum. Vilhjálmi og Siggu í einhverjum dansi/gjörningi. Þannig að ef þið viljið fá það á netið þá getið þið bara beðið um það í athugasemdum. Ég veit allavega að ég verð strokaður af jólakortalista Siggu næstu 15 árin ef þetta rambar á netið, hehe.

 

set kannski fleiri myndir inn seinna ef eg nenni, efast samt storlega um tad, hehe......

 

kv.

Þórhallur formaður “Bexý Bags Fan Club”

12. apríl 2007 klukkan 22:00
Ţórhallur Siggeirsson
12 athugasemdir
02apríl

Smá pása frá tjöllunum



Þar sem afmælismánuður predikarans er liðinn og mánuður páska er genginn í garð, þá kemur blogg.

Tók þá sjálfmorðsákvörðum í seinustu viku að fara í ljósatíma. Hef ekki verið þekktur fyrir að heimsækja þennan horbjóð og er hægt að telja heimsóknir mínar þangað frá fæðingu á fingrum hægri handar, en þar sem ég fer til Spánar á morgun þá þótti mansheilanum mínum jafnvel sniðugt að taka eina fyrirfram æfingu eða svo. Ljósatíminn tók ekki nema átta mínútur og hafði ég ekki trú á að það gæti nú skaðað mig mjög. Nei nei, annað kom nú á daginn, lýt út eins og Stephen Henchoz þegar hann er búinn að taka 20 mínútna upphitun. Kæmi mér ekki á óvart að Hagkaup myndi hringja í mig á næstu dögum og bjóða mér starf í sumar sem Tommi Tómatur.


Halló krakkar ég heiti Tommi Tómatur...... (klassík)


Úr ruglinu í námið. Skólinn búinn, shibbý. Prófin voru á fimmtudag og föstudag. Reyndar hafði ég nú bara nokkuð gaman af skólanum og þessum prófum. Ef það er ekki stimpill á það að maður sé orðinn þroskaður einstaklingur, þegar maður er farinn að hafa gaman af skólanum, þá veit ég ekki hvað.


Átti að vera leikur á föstudaginn en vegna regndropa sem datt einhvers staðar niður á Englandi á fimmtudeginum þá var honum að sjálfsögðu aflýst.


Á laugardaginn fór ég Manchester United – Blackburn leikinn. Ætlaði að fara sjálfur og reyna að versla miða á svörtu. Hins vegar kom gamla konan sem býr við hliðin á og spurði mig hvort að ég vildi kom með sér á leikinn. Fokkin snillingur ! hún bauð mér á leikinn því að hún átti miða og sonur hennar komst ekki þar sem hann var að vinna. Reyndar truflaði það mig pínulítið þegar við vorum kominn og búinn að leggja í fatlaðra stæðið okkar, þá spurði hún mig hvort ég vildi vera með henni eða einn, því að hún ætlaði að fara fá sér bjór á pöbbnum fyrir leikinn. Full og fötluð gömul kona er eitthvað sem ég hef ekki verið að dreyma um að vera með í bíl. Sem betur fer skilaðu hún mér heilum til baka, hehe. Annars var þessi leikur eflaust einn af betri leikjum á tímabilinu. Við erum að tala um 1-0 fyrir Blackburn í hálfleik en leikurinn endaði 4-1. Til að setja skemmtanagildið í samhengi þá var þetta eins og að horfa á systir sína landa gullverðlaunum í 400 metra flugsundi á ólympíuleikunum í Beijing 2008 eftir að hún hafi afnumið 5 ára keppnisbanni vegna steranotkunar árið 2002.


d

Veðrið hérna er orðið algjör klassi og sólin lætur sig sko alls ekki vanta í amstri dagsins. Síðan er leikur á eftir, útileikur á móti hinum frægu Morecambe mönnum. Skilst að þeir séu efstir í deildinni þannig að þetta verður vonandi alvöru leikur.


Af Hazelmere fjölskyldunni minni þá er allt það besta að frétta. Þau voru að kaupa plasma sjónvarp því að hitt 42 tommu var orðið tveggja ára. Þau kaupa víst alltaf nýtt á tveggja  ára fresti því að þá rennur ábyrgðin út. Konan var að kaupa fleiri apamyndir til að hengja upp í eldhúsinu. Hún er nefnilega með eitthvað
fetish fyrir órangútum.


Svo er það Espania á morgun. Verð að játa það að ég er nokkuð spenntur fyrir ferðinni. Komast jafnvel í mat sem inniheldur ekki baunir. Flýg frá Liverpool, þannig að maður þarf líklegast að taka lestina í fyrramálið þangað til að mæta tímalega í flugið.


Bueno adiós y se divierte en la interrupción de Pascua
Thorhallur
02. apríl 2007 klukkan 12:36
Ţórhallur Siggeirsson
3 athugasemdir
27mars

blobbfaersla

Þar sem Englendingar er farnir að átta sig á því að það að ráða Steve McLaren sem landsliðsþjálfara er eins og að ráða strætóbílstjóra sem tannlækni, þá kemur blogg. Fyrirsögnin í blaðinu í gær var að hann væri rangur maður í röngu starfi sem gæti ekki einu sinni skipulagt orgy-u í vændishúsi.


Það var fótboltaæfing á fimmtudaginn. Einhver gaur úr liðinu sá Tal Ben Haim á veitingastað um daginn. Allir jakkafataklæddir sem voru með honum og hann var í þessum huggulega klæðnaði. Síðan var hann víst í gapandi lituðum gervigrasskóm sem var engan veginn að gera sig. Ben Haim er víst þekktur hérna fyrir að vera mega ansalegur gaur með núll smekk fyrir öllu.


Fór á föstudaginn með Victori út að hlaupa. Þessi gaur er eflaust P.Hreinsson þeirra Wiganbúa því hann er í sóðalegu formi. Hlupum upp einhverjar brekkur og hélt ég að hann myndi ganga frá mér. Það var reyndar geðveikt fyndið því hann var alltaf að hvetja mig og gefa mér ráð eins og hann væri einkaþjálfarinn minn, hehe. Hann sýndi mér síðan hvar Kevin Nolan og boxarinn Kahn búa og þetta eru ágætis hallir og já þeir eiga líka nokkra fína bíla. Victor er meindýraeyðir og þriggja barna faðir, hehe. Það er reyndar bara eðlilegt hérna að eiga a.m.k tvo börn fyrir tvítugt. Yngsta móðurinn í Englandi núna er 12 ára, hversu bilað er það ?


Spilaði á laugardaginn fótboltaleik með ræsisrottunum í bænum. Það var fínt að rifja upp boltann eftir of langt hlé. Töpuðum eftir framlengingu en við vorum búnir að missa nokkra af velli með rautt í rassvasanum. Þetta er nefnilega allt saman blóðheitir rugby leikmenn sem elska smá samstuð, hehe. Til að mynda var einn rekinn útaf af því að hann ætlaði að smassa hausinn á einhverjum í hinu liðinu (eins og hann orðaði það sjálfur), það tókst samt ekki hjá honum. Það voru nokkrir áhorfendur á vellinum, aðallega mömmur og pabbar, blindfullir klukkan 2 á laugardegi “horfandi” á syni/vini sína. Hversu klikkað lið ?


Annars er Wigan helsti rugby bær Englands og allir kallarnir hérna eru útúr steraðir og finnast fátt skemmtilegra að vera blindfullir og komast í slagsmál. Kynntist því aðeins á laugardeginum þegar ég kíkti í bæinn með Victori. Fórum fyrst í einhvað partý í Hindley og fórum svo niður í bæ. Kvöldið endaði með Victori uppi á slysó. Hittum í sárabót fullt af einstaklega hressu og skrítnu fólki þar. Til að mynda gaur sem sagðist vera axlar- og handleggsbrotinn þegar hann kom, hann gat gjörsamlega ekki hreyft legg né lið, en eftir að hann var skoðaður var ekkert að honum. Fór út sveiflandi báðum höndum, hehe þvílíkur kjáni. Svo var það bara Kebab og farið í rúmið einum klukkutíma fátækari. 


Eyddi sunnudeginum í saununni í gymminu. Kíkti síðan í nýju verslunarmiðstöðina í Wigan en fór fljótlega vegna leiðinda. Í gær fór ég í innanhúsbolta með einhverjum köllum hérna á svæðinu sem var hressandi. Einn gaurinn var tvilikur Bolton fan ad hann vissi meiri ad segja hver olafur pall snorrason vaeri. Hann tekkti lika flest lidin i urvalsdeildinni a islandi, eg gat to bent honum a HK og ad tad vaeri besta lidid tessa dagana a klakanum. Prófin í skólanum eru á fimmtudag og föstudag, þannig að allir er svaka stressaðir í skólanum. Annars er bara vika í Spán, úfff.....
27. mars 2007 klukkan 11:52
Ţórhallur Siggeirsson
5 athugasemdir
19mars

frettir

Á föstudaginn fór ég með meðLimunum á heimilinu á barinn. Það var nefnilega pílukastsæfing hjá Johnny, svo að ég og Ryan fórum með honum. Spiluðum pool og horfðum á pílukastshetjurnar sýna listir sýnar. Eftir pílukastæfingin var búinn og vinir hans Johnny orðnir mjög fullir voru þeir að spyrja mig hægri vinstri um Ísland. Ég bullaði og bullaði í þeim og sagði þeim að ég þyrfti á hverju kvöldi að fara út og veiða mér fisk með berum höndum í matinn. Blessaður vertu, þeir gleyptu við þessu öllu og hlustuðu eins og 6 ára börn sem væru á Latarbæjarleikritinu.

 d

Fór á stórleik Wigan - Fulham á laugardaginn. Þessi leikur fær ekki viðurnefnið leikur leikjanna en það voru samt atvik í leiknum sem fékk mann til að brosa. 0-0 jafntefli staðreynd og færri en fimm marktilraunir í leiknum. Reyndar gaf mér þetta jafntefli 3000 kall þar sem ég tippaði fyrir leikinn.



Eitt af atvikum leiksins, tetta er reyndar bara brotabrot af myndbandinu sem eg tok. Hann var hress tessi, hann ma nu eiga tad.
http://www.youtube.com/watch?v=HCtwDQr6PcY
 


Um kvöldið fór ég með Ryan í afmæli hjá Lee sem hefur farið með okkur í bíó nokkrum sinnum meðan ég hef verið hérna. Byrjuðum á því að fara í keilu í Wigan, en fjölskyldan hans var þar saman kominn til að fagna hans 32 aldurs ári. Því miður þá gæti þessi klingona fjölskylda stofnað félag hreyfihamlaðra einstaklinga á staðnum því mikið djöfull voru þau léleg í keilu.  Þegar einn einstaklingur rífur 50 stiga múrinn í heilum leik þá er eitthvað að hrjá mannskapinn. Tókum þrjá leiki og verð ég að játa að þetta var orðið ansi þreytt seinust tvo leikina. Fórum heim til afmælisbarnsins eftir að ég hafi sigrað tvo af þessum þremur leikjum, þurfti að játa mig sigraðan í seinasta leiknum vegna þreytu og vegna þess að við notuðum hjálparveggina svo að kúlan gat ekki farið í rennuna. Heimili þessa gaurs er eflaust draumaheimili piparsveinsins ef einhver dreymir um þannig vafasama titil einhvern tímann. Hús á tveimur hæðum, efri hæðin skipuð af klósetti, tölvuherbergi og svefnherbergi. Vangefið stórt plasma sjónvarp í svefnherberginu, xbox og bókahillur fullar af dvd myndum. Reyndar voru þetta allt StarTrek myndir en þá má nú alveg býtta þeim. Eiginlega var allt húsið yfirfullt af StarTrek dóti, enda er hann búinn að bjóða mér á einhverja klingona sýningu í lok mánaðarins í Birmingham, efast stórlega að ég fari. Niðri var svo leikherbergi með pool-borði, píluspjaldi og bar. Svo eldhús og annað herbergi sem innihélt lyftingartæki. Ekki skemmir fyrir að þetta var íbúin við hliðin á mömmu hans og pabba. Við spiluðum semsagt pool og drukkum brugg af barnum þarna fram á rauða nótt. Reyndar var kareokí tæki þarna hjá honum og þegar þau byrjuðu að syngja YMCA í nítjánda skiptið þá var það orðið frekar böggandi.

 

Í gær sunnudag var mesta rigning í heiminum hérna og það var ekkert farið út. Ef maður ætlaði út þá var það kútaskylda og viðunandi árangur í skólasundi nauðsynlegur. Glápti því bara á sjónvarpið (arsenalmenn þetta kemur) og endurvakti Football Manager eftir langt langt hlé.


Myndir; d

manutd-lille
d
manutd-europeXI
dfg
konguloin sem byr fyrir ofan rumid mitt, hehe.


Annad myndband af bylgjunni fraegu sem var ostodvandi a united - europe leiknum.
http://www.youtube.com/watch?v=ey9taqzOpIg




Annars bið ég að heilsa þeim sem þurfa á heilsun að halda. Þó sérstaklega bið ég að heilsa nafna mínum og bið þeim að skila því til hans þeir sem það geta.

19. mars 2007 klukkan 14:23
Ţórhallur Siggeirsson
9 athugasemdir
14mars

Hvađ er ađ frétta úr landi hunda og e-pillu tónlistar ?

Það hafa tveir menn bæst á listann minn yfir menn sem vert er að hausfría og það er annars vegar Akon og hins vegar Mark, gaurinn sem vinnur í gymminu mínu sem ég fór í einkatíma til um daginn.

 

Var nefnilega einn í ræktinni um daginn og enginn sjáanlegur svo að ég ákvað að reyna að minnka hausverkinn sem Akon/Scooter techno remix var að gefa mér í hátalarakerfinu og ætlaði að lækka aðeins. Fór og fann spilarann og byrjaði að fikta í þessu með þeim árangri að ég skipti um útvarpstöð sem var jafnvel enn betra en að lækka í hinu. En þegar ég sneri mér við breyttist bros mitt skyndilega í áhyggjusvip því að Mark einkaþjálfarinn var kominn á bakið á mér ekki beint með vinasvipinn uppi. Hann var heldur betur ekki ánægður með og lét mig heyra það og setti svo aftur á hina útvarpstöðina og hækkaði óþarflega mikið fyrir minn smekk.


Fór á United grín leikinn á þriðjudaginn. Þetta var hins fínasta skemmtun þó svo að alltaf sé hægt að gera betur. Til að mynda voru sætin sem ég og Ryan fengum ekki beint til að dressa sig upp í blautbúning og dansa samba yfir. Næst efsta mögulega röð í stúkunni, alls ekki fyrir lofthrædda get ég sagt þér. Lippi valdi evrópuliðið en það var eflaust ekki besti valkostur í svona skemmtanaleik. Þekktur fyrir þaulskipulagðan varnarleik og yrði ánægður með 1-0 sigur úr þessum vináttuleik, hehe. Mannvalið mætti bæta til muna hjá honum því leikmenn eins og Materazzi, Ayala, Gattuso, Ivan Campo, Cristianval (hver bauð honum?), Fowler og Carragher eru kannski ekki mjög mikið fyrir augað. Vellti einnig fyrir mér hvernig Ayala, El Hadji Diuf og Mancini komust í þetta EVRÓPULIÐ. Kannski að einhver geti sagt mér frá hvaða evrópulandi þeir koma. Í seinni hálfleik þegar allir Bolton og Liverpool leikmennirnir komu inná og stemningin í lágmarki tókst einhverjum að starta bylgju. En þar sem stúkan nær allan hringinn í kringum völlinn þá varð hún ódauðleg. Við erum að tala um 500 hringi af bylgju í seinni hálfleik og var hún orðinn dálítið þreytt þessa seinustu hringi. Annars mætti Beckham á svæðið og gaf viðtal í hálfleik við mikla hrifningu áhorfenda. Það var nú einnig tekið viðtal við Denis Irwin í hálfleik en áhorfendur virtust hafa meiri áhuga á því að blása í lúðrana þá frekar en að hlusta á kallinn.


Verð að játa að mér finnst þessir kennarar ansi duglegir við að taka út veikindadagana sína. Það hljóta að vera 5 veikindadagar í mánuði hjá þeim. Þannig að bekkurinn minn hefur þurft að vera með öðrum bekk þessa vikuna. Sem er reyndar ekkert glatað því þar hitti ég fyrir afríku vinkonuna mína sem talar eins og Gunnar Birgis. Hef samt setið við hliðin á Pakistana seinust tvo daga og hef haft gaman af. Við erum að tala um þjóðbúning alla daga og gangsta húfu sem fara einstaklega kjánalega saman. Var að reyna láta hann kenna mér að skrifa eitthvað á Pakistönsku en það er alveg vonlaust að skrifa svona afturábak. 


Enda tetta a brandara fra mommu. Eg veit, tessi faer ekki nobelsverdlaunin en hann er lumskur og tad ma bros yfir honum.

Þrír verk fræðinemar sátu saman og voru að rökræða það hver hefði getað hannað mannslíkamann.
Sá fyrsti sagði, "Það hlýtur að hafa verið vélaverkfræðingur.
Mannslíkaminn er með allar þessar vogastangir, ása og
hluti-vélaverkfræðingur hlýtur að hafa hannað það allt".
Sá næsti sagði, "Nei það hlýtur að hafa verið rafmagnsverkfræðingur.
Taugar og vefir eru víraðir upp á flókinn hátt í heilann svo það hlýtur að hafa verið rafmagnsverkfræðingur.
Nei sagði sá þriðji,"Þetta var byggingarverkfræðingur. Aðeins
byggingaverkfræðingur myndi leggja skólplagnir í gegnum leiksvæði".

14. mars 2007 klukkan 15:50
Ţórhallur Siggeirsson
Engin athugasemd
12mars

mistok ferdarinnar

Þar sem tad eru 22 dagar tangad til ad eg fer til Spanar þá kemur blogg. Það er leikur hjá liðinu sem ég spila með í dag. Fyrsti leikurinn í meira 4-5 vikur. Hins vegar má Þórhallur ekki spila út því hann náði að gera einhvern vöðva í lærinu sínu ónothæfan. Er búinn að fara í einhverjar rafmagnsbylgjur hjá lækni liðsins og vonandi er þetta að lagast. Má sem sagt ekki hreyfa mig neitt þessa dagana. Það er alveg á hreinu að mér er ekki ætlað að spila fótbolta hérna.

Fór á United – Lille leikinn seinasta þriðjudag og takk fyrir túkall, þetta var leiðinlegasti leikur sem ég hef séð. Fer á United – Europe XI leikinn á morgun eftir að hafa keypt undir 16 ára miða á 500 kall á netinu. Ef að þeir vilja ekki hleypa mér inn þá verður bara heimski útlendingurinn sem skilur ekki neitt tekinn á þetta.

Gerði mistök ferðarinnar hingað til um daginn þegar ég jánkaði við því þegar Karen spurði mig hvort að ég hafði gaman af því að skoða myndir. Hún sagði mér nefnilega að hún hefði verið búin að liggja yfir myndaalbúmum allan daginn og þegar hún spurði mig sagði ég bara alveg eins til að láta hana ekki líta illa út með þessi þrjátíu albúm í kringum sig. Hins vegar fara þessi mistök í flokk með scooter tónleikunum sem ég fór á í grunnskóla. Seinna um daginn kom hún nefnilega inn í herbergi til mín með sex myndaalbúm og settist í rúmið við hliðin á mér. Ég hélt að þetta væri tilraun til gríns hjá henni fyrst en svo var ekki. Opnaði hún fyrsta albúmið og byrjaði að lýsa öllum myndunum eins nákvæmilega og hún gat. Þarna þurfti ég að sitja og hlusta á þessar myndarlýsingar örugglega í klukkutíma og voru albúm þarna meðal annars frá því þegar hún var lítil, vá hvað það var leiðinlegt að skoða þetta með henni. Hvaða áhuga hef ég að vita hvað vinir hennar og frændfólk á þessum svarthvítum myndum heita? Eða hvernig þeim tókst að setja eldhúsinnréttinguna rétt saman í gamla húsinu þeirra? Eða hversu frábærir veitingarstaðir eru á Krít ? Eða hvernig allt fólkið í brúðkaupinu þeirra eru skyld þeim?

Kikti adeins ut a lifid i Wigan um helgina med strakum ur lidinu sem var fint. Annars klárast skólinn hjá mér 30.mars. Hins vegar gæti verið að hann klárist 28 þar sem að það er ekki vitað hvort að ég geti fengið að taka einhver próf sem eru tvo seinustu dagana af tvi eg er buinn ad vera svo stutt i skolanum. Ætla í bíó í kvöld með Ryan og frændum hans á Ghostrider sem er án efa svipað léleg mynd og X-men en þar sem þeir splæsa alltaf þá ætla ég að kíkja með þeim. 
12. mars 2007 klukkan 13:53
Ţórhallur Siggeirsson
1 athugasemd
07mars

kellogs special

Vegna þess að 60 dagar eru bunir af afhræðslunámskeiðinu mínu gagnvart hundum þá verður til bloggfærsla. Það gerðist sá merkilegi atburður að það var fótboltaæfing í seinustu viku. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég var spenntur í að fara í smá bolta. Eftir upphitun og að þjálfarinn hafi tilkynnt að það yrði enginn leikur um helgina náði hann í kassettutæki. Júbb það var píptest, eftirlæti allra sem hafa engan áhuga á frjálsum íþróttum. Eftir pítptestið þá var ekki fótbolti, nei nei, þá tóku við sprettir. Ekki venjulegir sprettir heldur Zelkjo sprettir, minnst 60 metra langir. Þannig að það var enginn bolti þessa æfinguna.

Annars hefur stefnan verið tekinn á Spán. Í byrjun apríl í viku, aðeins að kíkja á sólina áður en maður kemur heim. Hitta pú og pa og afkvæmin þeirra í nýja sumarhúsinu okkar ;)

Í skólanum á mánudaginn áttum við að búa til ljóð sem er ekki frásögufærandi nema það af Afganistinn í hópnum gerði lélegasta ljóð í heiminum. Ljóðið átti nefnilega að ríma og tókst honum að halda að England, Pólland, Finnland o.s.frv rímaði. Þannig að allar línurnar hans enduðu á landanafni. Ég skal gefa ykkur dæma af fyrstu línunum hans;

I have been to England

and I wanna go to Polland

Svona hélt þetta áfram línu eftir línu, erindi eftir erindi, og svo klöppuðu allir fyrir honum í lokinn nema ég, ég hló. Hann var gjörsamlega í skýjunum með þetta. Fyrir mig, ljóðaaðdáandann mikla, var þetta miltisbrandur í ljóðaformi.

Á laugardaginn fór ég með famelíunni til Manchester. Það var nefnilega pílukastmót hjá bróður Karenar. Í kofa í garðinum hjá honum sem er eins og dúkkuhús. Það gátu bara verið þrír inni í kofanum í einu, sá sem var að kasta og tveir næstu í röðinni hinir biðu fyrir utan. Flestir karlarnir höfðu farið á City leikinn fyrr um daginn og voru semsagt búnir að vera að drekka allan daginn. Hvað er betra en að spila pílukast þegar maður er vangefið fullur? Ákvað að vera með eftir að þeir höfðu spilað nokkra leiki. Byrjuðum á því að kasta næst miðju uppá hver byrjaði, og viti menn smellti ég ekki pílunni beint í miðjuna. Þaðan rann öll lukka mér úr greipum og var ég alltaf í seinasta sæti.

07. mars 2007 klukkan 12:59
Ţórhallur Siggeirsson
10 athugasemdir
04mars

20 ara

Vildi bara benda a tad ad taningurinn er ordinn ad manni. Fekk sjo afmaeliskort i morgun fra flestum sem eg hef ekki einu sinni hugmynd um. Sidan gaf fjolskyldan herna mer united buninginn sem var prima gjof. Konan a heimilinu let mig fa tessa bok um afmaelisdaginn minn adan og  her kemur tad sem stod i henni.

4.mars - The day of creative isolation

Styrkleikar teirra sem eiga afmaeli tennan dag.
Self contained
Intimate
Autonomous

Veikleikar teirra sem eiga afmaeli tennan dag.
Fearful
Shy
Self involved

Svo kom var tetta rad ur bokinni til ad baeta einstakling sem a afmaeli tennan dag.
Make an effort to interact more with people. Develop your social skills. Dont use being alone as an escape. Stay in touch with the perceptions of others.
04. mars 2007 klukkan 12:37
Ţórhallur Siggeirsson
5 athugasemdir
28febrúar

blogglengja

Tími á risablogg fyrir mömmu sem er ekki ánægð með blogg fríið sem ég gaf mér. Ég er nefnilega búinn að átta mig á því af hverju bloggsíður lifa sjaldnast lengi. Annars þá komu Gauji og Siggi í heimsókn um helgina.

grinkallar ad fokka old trafford - teir kunna ad bua til grin tessir....
k
k
siggi sofandi i stellingu helgarinnar
k

Þannig að helgin var í skemmtilegri kantinum. Fór og náði í þá á lestarstöðina á fimmtudeginum og gistum á þessu skemmtilega hóteli rétt hjá Old Trafford. Það þurfti samt góða göngu fyrir okkur til að finna þetta. Reyndar voru við hrikalega duglegir að ganga þessa helgina, bæði þarfar og virkilega óþarfar göngur. Á föstudeginum fórum við í verslanaleiðangur. Heimsmet í að kaupa lítið var sett þarna; Gauji keypti skó og Siggi nærbuxur, that´s it. Mér skilst samt að þegar Gauji opnaði skókassann þegar hann kom heim voru þetta sitthvor tegundin af skóm. Ef þetta er ekki eitthvað týpískt að henda Gauja þá veit ég ekki hvað.
k
Borðuðum á Pizza Hut en Reese Witherspoon var að vinna alla helgina þar við að þrífa af borðunum, allavega var þessi hrikalega lík henni. Fórum á skemmtistaði bæjarins um kvöldið sem var fínt. Gauji varð fyrir aðsúgi kvenfólks sem hafði gríðaráhuga á Elvis toppnum á meðan þá kenndi í svörtu konunum á staðnum hvernig átti að dilla rassinum.
j
Á laugardeginum fórum við tilgangsmikla ferð til Liverpool. Ætluðum að reyna að fá miða á Liverpool – Sheffield United en fengum enga miða þar sem völlurinn tekur bara svipað marga og Herjólfur. Horfðum á leikinn á Pub fyrir utan völlinn. Fórum svo til baka með lestinni með hangandi haus.
k
Skelltum okkur á skemmtistaðina aftur um kvöldið en sú ferð gekk ekki alveg jafn vel og kvöldið áður. Voru dyraverðirnir ansi strangir á dresscodinu og þurfti ekki neitt minni en Armani föt til að komast inn. Enduðum á barnum á hard rock sátum í góðan tíma. Gauji beilaði samkvæmið stuttu seinna en ég og Siggi komumst loks inná einhvern skemmtistað þarna. Það var gæslapartý í gangi þangið að ég og Siggi tjúttuðum með mömmunum fram á rauða nótt. Þegar var búið að loka stöðunum hittum ég og Siggi fullt af skemmtilegu fólki. Við sungum hástöfum Johnny Cash með einhverjum blindfullum gaur sem söng “shot a men in reeno just to watch him die” svona milljón sinnum. Enduðum á strætóstöðinni spjallandi við einhverjar stelpur sem voru feitar og ljótar eins og er í tísku hérna í borginni. Þegar við komum heim fórum við í spilakassana á hótelinu um sex leytið við litla hrifningu varðarins á staðnum. Satt best að segja vorum við ekkert bestu gestir sem hótelið hefur fengið. Fengum einhvað bréf sem sagði að það væri ekki nógu snyrtilegt í herberginu. Reyndar líka þar sem þau héldu að við höfðum stolið plöntu af barnum, en Siggi fékk hana bara lánaða meðan við vorum á hótelinu til að skreyta herbergið okkar betur.
l
k
Samviskusami Guðjón tók því sérstaklega vel til á sunnudeginum og Siggi skilaði plöntunni góðu. Á sunnudeginum fórum til Blackburn á Blackburn – Porsthmouth.
m
j
i
Leikurinn var gríðargóð skemmtun og var David James maður leiksins fyrir að vera mesti kjáni í heimi.....England Football England England Football (gauji og siggi skilja þetta). Tókum leigubíl á lestarstöðina eftir leikinn, bulluðum í Indverjanum sem keyrði að það væri mínus 20 gráður á Íslandi o.s.frv. og að sjálfsögðu gleypti hann við þessu öllu. Fórum og barinn á Hótelinu og horfðum á Barcelona leikinn og þar hittum við mann dagsins, David. David eða Dahi eins og hann heitir réttu nafni. David er PartyManager með sitt eigið fyrirtæki og á kærustu frá Singapúr. Sátum við spjallandi við hann til tvö um nóttina. Hann sá um að strauja kortið á barnum fyrir okkur alla og vorum við farnir að drekka viskí og ég veit ekki hvað og hvað. Bulluðum endalaust í honum og hann í okkur enda sátum við á spjalli einir á barnum í rúma fimm tíma. Strákarnir fóru svo heim um nóttina og tók Gauji að sjálfsögðu lykilinn á herberginu með sér heim og var konan ekki hress þegar ég var að tjékka út af hótelinu með engan lykil og kvörtunarbréfið í vasanum. Fór svo heim til Wigan og svaf það sem eftir var af deginum. Á þriðjudeginum fór ég svo í skólann, var í með öðrum bekk þar sem kennarinn sem átti að kenna mér var veikur. Bekkurinn var í skrautlegri kantinum. Við erum að tala um Bin Laden look-a-like og svertingja konu sem talaði eins og Gunnar Birgisson. Hún sá um að skemmt mér allan daginn, þegar hún opnaði munninn þá þurfti ég að spenna alla mögulega vöðva til að kasta ekki upp úr hlátri. Bara ef ég væri alltaf með henni í tímum. Í matarhléinu settist ég með mömmu minni í skólanum sem er ein 45 ára frá Algeríu. Hún er snillingur sem passar mig eins og ég sé litla barnið hennar. Svo var vinkona hennar með okkur. Þessi vinkona hennar var að missa pabba sinn í seinustu viku og það er einhver siður í hennar landi að ef maður missir fjölskyldumeðlim að þá á maður að gefa vinum sínum gjafir. Sem betur fer var vinkona mín frá Algeriu búinn að segja mér þetta og sagði hún að ég yrði að taka við öllu sem hún byði mér. Endaði þetta matarhlé með einhverja þrjá kexpakka í vasanum sem þessi kona gaf mér. Við erum að tala um að ég var að sjá hana í fyrsta skiptið þarna. Gaman af því, ekki samt að hún hafi verið að missa pabba sinn. Í dag var venjulegur skóladagur sem var fínt.

Enda þetta blogg áður en það verður lengra en Passíusálmarnir með því setja inn þessa mynd sem er búinn að vera mikið í fréttum hérna. Her er hun.

Það er nefnilega unglingur skotinn á vikufresti hérna núna og eru Bretar að átta sig á því að öll unglinga gengi eru með skotvopn á sér. Kannski það skemmtilega við þessa mynd að hún er tekinn þar sem stefnan er fara hjá fjölskyldunni um helgina. Systur konunnar sem ég bý hjá býr þarna í þessu hverfi og við erum að fara þangað á laugardaginn. Ekki að ástæðulausu, konurnar eru að fara á Robbie Williams tribute tónleika eða sýningu eða einhvað.  Á meðan þá eru karlarnir með pílukastmót í skúrnum í garðinum skilst mér. Jább ekki leiðinleg eyðsla á laugardeginum það. Á sunnudaginn verður svo Þórhallur vinur minn 20 ára.

d
Set líka þessa mynd af þessu fyrirmyndar barni sem vantar einungis 2 kíló til að fella 100 kílóamúrinn aðeins 8 ára gamall. Við erum að tala um 20 snakkpakka á dag. Hvað er að mömmu hans. Alltaf myndir af henni vera að mata uppí hann sóðalegum mat og klæðir hann svo í þar sem hann er of feitur til að gera það sjálfur. Þetta er búið að vera endalaust í fréttum hérna líka.


Vona að þetta blogg dugi mér næstu daga.
Kveðja til Íslands og Galopacos-eyja, Þórhallur Siggeirsson
28. febrúar 2007 klukkan 20:17
Ţórhallur Siggeirsson
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

Tenglar