blogglengja
Tími á risablogg fyrir mömmu sem er ekki ánægð með blogg fríið sem ég gaf mér. Ég er nefnilega búinn að átta mig á því af hverju bloggsíður lifa sjaldnast lengi. Annars þá komu Gauji og Siggi í heimsókn um helgina.
grinkallar ad fokka old trafford - teir kunna ad bua til grin tessir....

siggi sofandi i stellingu helgarinnar

Þannig að helgin var í skemmtilegri kantinum. Fór og náði í þá á lestarstöðina á fimmtudeginum og gistum á þessu skemmtilega hóteli rétt hjá Old Trafford. Það þurfti samt góða göngu fyrir okkur til að finna þetta. Reyndar voru við hrikalega duglegir að ganga þessa helgina, bæði þarfar og virkilega óþarfar göngur. Á föstudeginum fórum við í verslanaleiðangur. Heimsmet í að kaupa lítið var sett þarna; Gauji keypti skó og Siggi nærbuxur, that´s it. Mér skilst samt að þegar Gauji opnaði skókassann þegar hann kom heim voru þetta sitthvor tegundin af skóm. Ef þetta er ekki eitthvað týpískt að henda Gauja þá veit ég ekki hvað.

Borðuðum á Pizza Hut en Reese Witherspoon var að vinna alla helgina þar við að þrífa af borðunum, allavega var þessi hrikalega lík henni. Fórum á skemmtistaði bæjarins um kvöldið sem var fínt. Gauji varð fyrir aðsúgi kvenfólks sem hafði gríðaráhuga á Elvis toppnum á meðan þá kenndi í svörtu konunum á staðnum hvernig átti að dilla rassinum.

Á laugardeginum fórum við tilgangsmikla ferð til Liverpool. Ætluðum að reyna að fá miða á Liverpool – Sheffield United en fengum enga miða þar sem völlurinn tekur bara svipað marga og Herjólfur. Horfðum á leikinn á Pub fyrir utan völlinn. Fórum svo til baka með lestinni með hangandi haus.

Skelltum okkur á skemmtistaðina aftur um kvöldið en sú ferð gekk ekki alveg jafn vel og kvöldið áður. Voru dyraverðirnir ansi strangir á dresscodinu og þurfti ekki neitt minni en Armani föt til að komast inn. Enduðum á barnum á hard rock sátum í góðan tíma. Gauji beilaði samkvæmið stuttu seinna en ég og Siggi komumst loks inná einhvern skemmtistað þarna. Það var gæslapartý í gangi þangið að ég og Siggi tjúttuðum með mömmunum fram á rauða nótt. Þegar var búið að loka stöðunum hittum ég og Siggi fullt af skemmtilegu fólki. Við sungum hástöfum Johnny Cash með einhverjum blindfullum gaur sem söng “shot a men in reeno just to watch him die” svona milljón sinnum. Enduðum á strætóstöðinni spjallandi við einhverjar stelpur sem voru feitar og ljótar eins og er í tísku hérna í borginni. Þegar við komum heim fórum við í spilakassana á hótelinu um sex leytið við litla hrifningu varðarins á staðnum. Satt best að segja vorum við ekkert bestu gestir sem hótelið hefur fengið. Fengum einhvað bréf sem sagði að það væri ekki nógu snyrtilegt í herberginu. Reyndar líka þar sem þau héldu að við höfðum stolið plöntu af barnum, en Siggi fékk hana bara lánaða meðan við vorum á hótelinu til að skreyta herbergið okkar betur.

Samviskusami Guðjón tók því sérstaklega vel til á sunnudeginum og Siggi skilaði plöntunni góðu. Á sunnudeginum fórum til Blackburn á Blackburn – Porsthmouth.

Leikurinn var gríðargóð skemmtun og var David James maður leiksins fyrir að vera mesti kjáni í heimi.....England Football England England Football (gauji og siggi skilja þetta). Tókum leigubíl á lestarstöðina eftir leikinn, bulluðum í Indverjanum sem keyrði að það væri mínus 20 gráður á Íslandi o.s.frv. og að sjálfsögðu gleypti hann við þessu öllu. Fórum og barinn á Hótelinu og horfðum á Barcelona leikinn og þar hittum við mann dagsins, David. David eða Dahi eins og hann heitir réttu nafni. David er PartyManager með sitt eigið fyrirtæki og á kærustu frá Singapúr. Sátum við spjallandi við hann til tvö um nóttina. Hann sá um að strauja kortið á barnum fyrir okkur alla og vorum við farnir að drekka viskí og ég veit ekki hvað og hvað. Bulluðum endalaust í honum og hann í okkur enda sátum við á spjalli einir á barnum í rúma fimm tíma. Strákarnir fóru svo heim um nóttina og tók Gauji að sjálfsögðu lykilinn á herberginu með sér heim og var konan ekki hress þegar ég var að tjékka út af hótelinu með engan lykil og kvörtunarbréfið í vasanum. Fór svo heim til Wigan og svaf það sem eftir var af deginum. Á þriðjudeginum fór ég svo í skólann, var í með öðrum bekk þar sem kennarinn sem átti að kenna mér var veikur. Bekkurinn var í skrautlegri kantinum. Við erum að tala um Bin Laden look-a-like og svertingja konu sem talaði eins og Gunnar Birgisson. Hún sá um að skemmt mér allan daginn, þegar hún opnaði munninn þá þurfti ég að spenna alla mögulega vöðva til að kasta ekki upp úr hlátri. Bara ef ég væri alltaf með henni í tímum. Í matarhléinu settist ég með mömmu minni í skólanum sem er ein 45 ára frá Algeríu. Hún er snillingur sem passar mig eins og ég sé litla barnið hennar. Svo var vinkona hennar með okkur. Þessi vinkona hennar var að missa pabba sinn í seinustu viku og það er einhver siður í hennar landi að ef maður missir fjölskyldumeðlim að þá á maður að gefa vinum sínum gjafir. Sem betur fer var vinkona mín frá Algeriu búinn að segja mér þetta og sagði hún að ég yrði að taka við öllu sem hún byði mér. Endaði þetta matarhlé með einhverja þrjá kexpakka í vasanum sem þessi kona gaf mér. Við erum að tala um að ég var að sjá hana í fyrsta skiptið þarna. Gaman af því, ekki samt að hún hafi verið að missa pabba sinn. Í dag var venjulegur skóladagur sem var fínt.
Enda þetta blogg áður en það verður lengra en Passíusálmarnir með því setja inn þessa mynd sem er búinn að vera mikið í fréttum hérna. Her er hun.
Það er nefnilega unglingur skotinn á vikufresti hérna núna og eru Bretar að átta sig á því að öll unglinga gengi eru með skotvopn á sér. Kannski það skemmtilega við þessa mynd að hún er tekinn þar sem stefnan er fara hjá fjölskyldunni um helgina. Systur konunnar sem ég bý hjá býr þarna í þessu hverfi og við erum að fara þangað á laugardaginn. Ekki að ástæðulausu, konurnar eru að fara á Robbie Williams tribute tónleika eða sýningu eða einhvað. Á meðan þá eru karlarnir með pílukastmót í skúrnum í garðinum skilst mér. Jább ekki leiðinleg eyðsla á laugardeginum það. Á sunnudaginn verður svo Þórhallur vinur minn 20 ára.

Set líka þessa mynd af þessu fyrirmyndar barni sem vantar einungis 2 kíló til að fella 100 kílóamúrinn aðeins 8 ára gamall. Við erum að tala um 20 snakkpakka á dag. Hvað er að mömmu hans. Alltaf myndir af henni vera að mata uppí hann sóðalegum mat og klæðir hann svo í þar sem hann er of feitur til að gera það sjálfur. Þetta er búið að vera endalaust í fréttum hérna líka.
Vona að þetta blogg dugi mér næstu daga.
Kveðja til Íslands og Galopacos-eyja, Þórhallur Siggeirsson
28. febrúar 2007 klukkan 20:17
Þórhallur Siggeirsson
Þórhallur Siggeirsson
Tiltektarmaðurinn sem fyllti heilan ruslappoka á meðann aðrir höfðu það gott upp í sófa kveður að sinni.