Hvað er að frétta úr landi hunda og e-pillu tónlistar ?
Það hafa tveir menn bæst á listann minn yfir menn sem vert er að hausfría og það er annars vegar Akon og hins vegar Mark, gaurinn sem vinnur í gymminu mínu sem ég fór í einkatíma til um daginn.
Var nefnilega einn í ræktinni um daginn og enginn sjáanlegur svo að ég ákvað að reyna að minnka hausverkinn sem Akon/Scooter techno remix var að gefa mér í hátalarakerfinu og ætlaði að lækka aðeins. Fór og fann spilarann og byrjaði að fikta í þessu með þeim árangri að ég skipti um útvarpstöð sem var jafnvel enn betra en að lækka í hinu. En þegar ég sneri mér við breyttist bros mitt skyndilega í áhyggjusvip því að Mark einkaþjálfarinn var kominn á bakið á mér ekki beint með vinasvipinn uppi. Hann var heldur betur ekki ánægður með og lét mig heyra það og setti svo aftur á hina útvarpstöðina og hækkaði óþarflega mikið fyrir minn smekk.
Fór á United grín leikinn á þriðjudaginn. Þetta var hins fínasta skemmtun þó svo að alltaf sé hægt að gera betur. Til að mynda voru sætin sem ég og Ryan fengum ekki beint til að dressa sig upp í blautbúning og dansa samba yfir. Næst efsta mögulega röð í stúkunni, alls ekki fyrir lofthrædda get ég sagt þér. Lippi valdi evrópuliðið en það var eflaust ekki besti valkostur í svona skemmtanaleik. Þekktur fyrir þaulskipulagðan varnarleik og yrði ánægður með 1-0 sigur úr þessum vináttuleik, hehe. Mannvalið mætti bæta til muna hjá honum því leikmenn eins og Materazzi, Ayala, Gattuso, Ivan Campo, Cristianval (hver bauð honum?), Fowler og Carragher eru kannski ekki mjög mikið fyrir augað. Vellti einnig fyrir mér hvernig Ayala, El Hadji Diuf og Mancini komust í þetta EVRÓPULIÐ. Kannski að einhver geti sagt mér frá hvaða evrópulandi þeir koma. Í seinni hálfleik þegar allir Bolton og Liverpool leikmennirnir komu inná og stemningin í lágmarki tókst einhverjum að starta bylgju. En þar sem stúkan nær allan hringinn í kringum völlinn þá varð hún ódauðleg. Við erum að tala um 500 hringi af bylgju í seinni hálfleik og var hún orðinn dálítið þreytt þessa seinustu hringi. Annars mætti Beckham á svæðið og gaf viðtal í hálfleik við mikla hrifningu áhorfenda. Það var nú einnig tekið viðtal við Denis Irwin í hálfleik en áhorfendur virtust hafa meiri áhuga á því að blása í lúðrana þá frekar en að hlusta á kallinn.
Verð að játa að mér finnst þessir kennarar ansi duglegir við að taka út veikindadagana sína. Það hljóta að vera 5 veikindadagar í mánuði hjá þeim. Þannig að bekkurinn minn hefur þurft að vera með öðrum bekk þessa vikuna. Sem er reyndar ekkert glatað því þar hitti ég fyrir afríku vinkonuna mína sem talar eins og Gunnar Birgis. Hef samt setið við hliðin á Pakistana seinust tvo daga og hef haft gaman af. Við erum að tala um þjóðbúning alla daga og gangsta húfu sem fara einstaklega kjánalega saman. Var að reyna láta hann kenna mér að skrifa eitthvað á Pakistönsku en það er alveg vonlaust að skrifa svona afturábak.
Enda tetta a brandara fra mommu. Eg veit, tessi faer ekki nobelsverdlaunin en hann er lumskur og tad ma bros yfir honum.
Þrír verk fræðinemar sátu saman og voru að rökræða það hver hefði getað hannað mannslíkamann.
Sá fyrsti sagði, "Það hlýtur að hafa verið vélaverkfræðingur.
Mannslíkaminn er með allar þessar vogastangir, ása og
hluti-vélaverkfræðingur hlýtur að hafa hannað það allt".
Sá næsti sagði, "Nei það hlýtur að hafa verið rafmagnsverkfræðingur.
Taugar og vefir eru víraðir upp á flókinn hátt í heilann svo það hlýtur að hafa verið rafmagnsverkfræðingur.
Nei sagði sá þriðji,"Þetta var byggingarverkfræðingur. Aðeins
byggingaverkfræðingur myndi leggja skólplagnir í gegnum leiksvæði".
Þórhallur Siggeirsson