frettir

Á föstudaginn fór ég með meðLimunum á heimilinu á barinn. Það var nefnilega pílukastsæfing hjá Johnny, svo að ég og Ryan fórum með honum. Spiluðum pool og horfðum á pílukastshetjurnar sýna listir sýnar. Eftir pílukastæfingin var búinn og vinir hans Johnny orðnir mjög fullir voru þeir að spyrja mig hægri vinstri um Ísland. Ég bullaði og bullaði í þeim og sagði þeim að ég þyrfti á hverju kvöldi að fara út og veiða mér fisk með berum höndum í matinn. Blessaður vertu, þeir gleyptu við þessu öllu og hlustuðu eins og 6 ára börn sem væru á Latarbæjarleikritinu.

 d

Fór á stórleik Wigan - Fulham á laugardaginn. Þessi leikur fær ekki viðurnefnið leikur leikjanna en það voru samt atvik í leiknum sem fékk mann til að brosa. 0-0 jafntefli staðreynd og færri en fimm marktilraunir í leiknum. Reyndar gaf mér þetta jafntefli 3000 kall þar sem ég tippaði fyrir leikinn.



Eitt af atvikum leiksins, tetta er reyndar bara brotabrot af myndbandinu sem eg tok. Hann var hress tessi, hann ma nu eiga tad.
http://www.youtube.com/watch?v=HCtwDQr6PcY
 


Um kvöldið fór ég með Ryan í afmæli hjá Lee sem hefur farið með okkur í bíó nokkrum sinnum meðan ég hef verið hérna. Byrjuðum á því að fara í keilu í Wigan, en fjölskyldan hans var þar saman kominn til að fagna hans 32 aldurs ári. Því miður þá gæti þessi klingona fjölskylda stofnað félag hreyfihamlaðra einstaklinga á staðnum því mikið djöfull voru þau léleg í keilu.  Þegar einn einstaklingur rífur 50 stiga múrinn í heilum leik þá er eitthvað að hrjá mannskapinn. Tókum þrjá leiki og verð ég að játa að þetta var orðið ansi þreytt seinust tvo leikina. Fórum heim til afmælisbarnsins eftir að ég hafi sigrað tvo af þessum þremur leikjum, þurfti að játa mig sigraðan í seinasta leiknum vegna þreytu og vegna þess að við notuðum hjálparveggina svo að kúlan gat ekki farið í rennuna. Heimili þessa gaurs er eflaust draumaheimili piparsveinsins ef einhver dreymir um þannig vafasama titil einhvern tímann. Hús á tveimur hæðum, efri hæðin skipuð af klósetti, tölvuherbergi og svefnherbergi. Vangefið stórt plasma sjónvarp í svefnherberginu, xbox og bókahillur fullar af dvd myndum. Reyndar voru þetta allt StarTrek myndir en þá má nú alveg býtta þeim. Eiginlega var allt húsið yfirfullt af StarTrek dóti, enda er hann búinn að bjóða mér á einhverja klingona sýningu í lok mánaðarins í Birmingham, efast stórlega að ég fari. Niðri var svo leikherbergi með pool-borði, píluspjaldi og bar. Svo eldhús og annað herbergi sem innihélt lyftingartæki. Ekki skemmir fyrir að þetta var íbúin við hliðin á mömmu hans og pabba. Við spiluðum semsagt pool og drukkum brugg af barnum þarna fram á rauða nótt. Reyndar var kareokí tæki þarna hjá honum og þegar þau byrjuðu að syngja YMCA í nítjánda skiptið þá var það orðið frekar böggandi.

 

Í gær sunnudag var mesta rigning í heiminum hérna og það var ekkert farið út. Ef maður ætlaði út þá var það kútaskylda og viðunandi árangur í skólasundi nauðsynlegur. Glápti því bara á sjónvarpið (arsenalmenn þetta kemur) og endurvakti Football Manager eftir langt langt hlé.


Myndir; d

manutd-lille
d
manutd-europeXI
dfg
konguloin sem byr fyrir ofan rumid mitt, hehe.


Annad myndband af bylgjunni fraegu sem var ostodvandi a united - europe leiknum.
http://www.youtube.com/watch?v=ey9taqzOpIg




Annars bið ég að heilsa þeim sem þurfa á heilsun að halda. Þó sérstaklega bið ég að heilsa nafna mínum og bið þeim að skila því til hans þeir sem það geta.

19. mars 2007 klukkan 14:23
Þórhallur Siggeirsson
sessa skrifar ...
Verð nú að viðurkenna að ekki finnst mér þetta skemmtilegur herbergisfélagi sem þú hefur krækt þér í, vissi ekki að þú værir svona "vina fár" .......!
19. mars 2007 klukkan 19:58
TorlasíusarM skrifar ...
Nafni þinn biður fyrir sérstakar kveðjur til þín á móti og allra bestu óskir um að þú hafir það sem allra best. Hér með er því komið til skila........;o)
19. mars 2007 klukkan 21:09
Halldór skrifar ...
sæll þórhallur,

hef skemmt mér mikið við lestur á blogginu þínu.
Fannst reyndar sláandi þegar ég las færsluna um að Akon væri ekki á vinalistanum þínum.

Maðurinn er snillingur, þú verður að gefa honum smá tækifæri.

Svo er það stórleikur í Lengjubikarnum í kvöld, HK-Stjarnan.

kveðja úr Garðabænum
Dóri
20. mars 2007 klukkan 09:41
romverjinn skrifar ...
ahahhahahah

THorhallur, eg held ad vid verdum ad skella upp piluspjaldinu okkar sem vid keyptum a spani tarna um arid og nuna er tad ekkert lengur 101 reykjavik um helgar, heldur bara bilskurinn i Daltuninu og pilukastkepni, eg finn tad a mer ad tu sert ad verda alveg helviti sjoadur i tessu...
skora a tig i leik i mai...

annars ta finnst mer frekar slappt ad vid verdum baedi a spani tegar lidin okkar keppa i meistaradeildinni...
verd ad saetta mig vid tad ad fara bara a roma-milan i stadin...tad aetti ad vera agaetis skemmtun, eflaust betri leikur en wigan bla bla bla sem tu sast um helgina!!

knus fra romverjanum
20. mars 2007 klukkan 15:29
Dóri minn, við skulum ekkert ræða þetta meira manstu ;)
20. mars 2007 klukkan 23:08
Halldór skrifar ...
neinei, ekki málið vilhjálmur.

kv
Dóri
21. mars 2007 klukkan 12:45
Thorhallur skrifar ...
Halldor tessar tolur hafa af eiganda sidurnar verid fjarlaegdar.

Sidan verdur tessi leikur ekki raeddur frekar. Punktur pasta

Eg er tilbuinn ad gefa "snillingnum" Akon sens fram a sumar med tvi skilyrdi ad tessar tolur poppa ekki herna aftur upp

.......smack that ?
21. mars 2007 klukkan 12:53
Halldór skrifar ...
smack that er eðalsmellur, ásamt nýja laginu sem ber nafnið Don't matter.


kv
Dóri
21. mars 2007 klukkan 14:26
Guðjón Þór Ólafsson skrifar ...
Ég vil minna eiganda síðunnar að honum ber að segja umheiminu frá samskiptum sínum við Tjallana og það reglulega.
26. mars 2007 klukkan 21:59

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Tenglar