Smá pása frá tjöllunum



Þar sem afmælismánuður predikarans er liðinn og mánuður páska er genginn í garð, þá kemur blogg.

Tók þá sjálfmorðsákvörðum í seinustu viku að fara í ljósatíma. Hef ekki verið þekktur fyrir að heimsækja þennan horbjóð og er hægt að telja heimsóknir mínar þangað frá fæðingu á fingrum hægri handar, en þar sem ég fer til Spánar á morgun þá þótti mansheilanum mínum jafnvel sniðugt að taka eina fyrirfram æfingu eða svo. Ljósatíminn tók ekki nema átta mínútur og hafði ég ekki trú á að það gæti nú skaðað mig mjög. Nei nei, annað kom nú á daginn, lýt út eins og Stephen Henchoz þegar hann er búinn að taka 20 mínútna upphitun. Kæmi mér ekki á óvart að Hagkaup myndi hringja í mig á næstu dögum og bjóða mér starf í sumar sem Tommi Tómatur.


Halló krakkar ég heiti Tommi Tómatur...... (klassík)


Úr ruglinu í námið. Skólinn búinn, shibbý. Prófin voru á fimmtudag og föstudag. Reyndar hafði ég nú bara nokkuð gaman af skólanum og þessum prófum. Ef það er ekki stimpill á það að maður sé orðinn þroskaður einstaklingur, þegar maður er farinn að hafa gaman af skólanum, þá veit ég ekki hvað.


Átti að vera leikur á föstudaginn en vegna regndropa sem datt einhvers staðar niður á Englandi á fimmtudeginum þá var honum að sjálfsögðu aflýst.


Á laugardaginn fór ég Manchester United – Blackburn leikinn. Ætlaði að fara sjálfur og reyna að versla miða á svörtu. Hins vegar kom gamla konan sem býr við hliðin á og spurði mig hvort að ég vildi kom með sér á leikinn. Fokkin snillingur ! hún bauð mér á leikinn því að hún átti miða og sonur hennar komst ekki þar sem hann var að vinna. Reyndar truflaði það mig pínulítið þegar við vorum kominn og búinn að leggja í fatlaðra stæðið okkar, þá spurði hún mig hvort ég vildi vera með henni eða einn, því að hún ætlaði að fara fá sér bjór á pöbbnum fyrir leikinn. Full og fötluð gömul kona er eitthvað sem ég hef ekki verið að dreyma um að vera með í bíl. Sem betur fer skilaðu hún mér heilum til baka, hehe. Annars var þessi leikur eflaust einn af betri leikjum á tímabilinu. Við erum að tala um 1-0 fyrir Blackburn í hálfleik en leikurinn endaði 4-1. Til að setja skemmtanagildið í samhengi þá var þetta eins og að horfa á systir sína landa gullverðlaunum í 400 metra flugsundi á ólympíuleikunum í Beijing 2008 eftir að hún hafi afnumið 5 ára keppnisbanni vegna steranotkunar árið 2002.


d

Veðrið hérna er orðið algjör klassi og sólin lætur sig sko alls ekki vanta í amstri dagsins. Síðan er leikur á eftir, útileikur á móti hinum frægu Morecambe mönnum. Skilst að þeir séu efstir í deildinni þannig að þetta verður vonandi alvöru leikur.


Af Hazelmere fjölskyldunni minni þá er allt það besta að frétta. Þau voru að kaupa plasma sjónvarp því að hitt 42 tommu var orðið tveggja ára. Þau kaupa víst alltaf nýtt á tveggja  ára fresti því að þá rennur ábyrgðin út. Konan var að kaupa fleiri apamyndir til að hengja upp í eldhúsinu. Hún er nefnilega með eitthvað
fetish fyrir órangútum.


Svo er það Espania á morgun. Verð að játa það að ég er nokkuð spenntur fyrir ferðinni. Komast jafnvel í mat sem inniheldur ekki baunir. Flýg frá Liverpool, þannig að maður þarf líklegast að taka lestina í fyrramálið þangað til að mæta tímalega í flugið.


Bueno adiós y se divierte en la interrupción de Pascua
Thorhallur
02. apríl 2007 klukkan 12:36
Þórhallur Siggeirsson
Sigga Run skrifar ...
Elsku broi minn, tu att aldrei eftir ad sja systur tina landa einhverjum titili i sundi a neinum storleikum...svo sa draumur er uti...
annars er eg nu virkilega stolt af ter ad tu hafir farid i ljos uppa tinar eigin spitur tvi ad ekki er eg buin ad fara i neinn einasta tima sem hlitur ad teljast heimsmet utaf fyrir sig...
annars aetla eg bara ad dempa adeins vonir tinar, eg efast um ad tad se eitthvad mikid solbadsvedur, allavegana herna i rom er nu ekki mikid haegt ad vera i solbadi...
her fagnar madur bara ef ad madur kemst ur ulpunni...reyndar er verdrid ordid gott nuna og stuttermabolur algjort mozt
sjaumsst a midvikudaginn...
a dopo bello...ci vediamo a prossima merdoledì in Spanga...
un bacio
02. apríl 2007 klukkan 12:52
Guðjón Þór Ólafsson skrifar ...
Þú ert væntanlega búinn að segja Mother Hazelmere að Órangútar geta verið hommar. Annars eru fokking 13 gráður á klakanum og það gæti hugsanlega talist sem bolaveður.
02. apríl 2007 klukkan 14:38
Slefarinn mikli skrifar ...
finnst nú að það hefði verið við hæfi að setja inn á þetta blogg..... "og þriðji afmælisdagur tvíbbana"

Þar sem þeir eru enn að tala um "Tóta kallinn sem var hjá Siggu"
11. apríl 2007 klukkan 09:24

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Tenglar